Í 14 mánaða fangelsi fyrir hótanir

Í ákærunni voru talin upp rúmlega 50 skilaboð sem Erlendur …
Í ákærunni voru talin upp rúmlega 50 skilaboð sem Erlendur sendi á tímabilinu. Morgunblaðið/Ernir

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt Erlend Eysteinsson í 14 mánaða fangelsi fyrir ítrekaðar hótanir í garð fyrrum sambýliskonu sinnar, Ásdísar Viðarsdóttur. Áður hefur verið fjallað ítarlega um mál þetta eftir að Ásdís sagði sögu sína í Kastljósi Ríkisútvarpsins í maí árið 2014.

Sjá frétt mbl.is: „Hann ætlar að láta mig borga“

Erlendur var ákærður í septembermánuði fyrir að hafa á tímabilinu 3. júlí til 15. ágúst árið 2015 margítrekað sent Ásdísi hótanir í textaskilaboðum. Segir í niðurstöðum dómsins að sum skilaboðin hafi verið til þess fallin að vekja hjá brotaþola ótta um líf, heilbrigði eða velferð sína.

Í ákærunni voru talin upp rúmlega 50 skilaboð sem Erlendur sendi Ásdísi á tímabilinu. Viðurkenndi hann fyrir dómi að hafa sent skilaboðin en fullyrti á sama tíma að ekki væri um hótanir að ræða. Segir hann í skýrslu fyrir dómi að fyrir sér hafi aðeins vakað að fá föðurarf sinn frá brotaþola, og vísaði hann þar til stóls sem verið hefði í eigu föður hans.

Meðal þeirra skilaboða, þar sem ekki þótti leika vafi á um að þar væri hótað refsiverðri meingerð eru til dæmis eftirfarandi:

  • „Or shall one be haunted for the rest of his/her life?“
  • „Honteted for the years to come.“
  • „Rest of life.“
  • „Þar til ég dey.“

Erlendi hefur enn fremur verið gert að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar hæstaréttarlögmanns, sem nema rúmlega 400 þúsund krónum.

Héraðsdóm­ur Norður­lands eystra úrskurðaði Erlend í nálgunarbann til sex mánaða í september síðastliðnum, eft­ir ít­rekaðar hót­an­ir hans í garð Ásdís­ar.

Ásdís krafðist nálg­un­ar­bannsins í júlí en þar sem málið gleymd­ist var kröf­unni vísað frá þegar lög­regl­an fór loks fram á nálg­un­ar­bann í ágúst. Héraðsdóm­ur sagði þá að lög­regl­an hefði lagt fram kröf­una of seint. Hæstirétt­ur vísaði svo kröf­unni um nálg­un­ar­bann aft­ur heim í hérað og þá fékkst loks nálg­un­ar­bannið.

Sjá frétt mbl.is: „Þetta var bara klúður“

Héraðsdómur Norðurlands eystra.
Héraðsdómur Norðurlands eystra. mbl.is/Skapti
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert