Engin ákvörðun tekin um ákæru

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Fjárkúgunarmál sem sneri að Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra er nú í skoðun hjá embætti ríkissaksóknara og hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort að ákært verði í málinu. Málið var í rannsókn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í rúma fimm mánuði en það var sent til ríkissaksóknara 9. nóvember síðastliðinn.

Syst­urn­ar Hlín Ein­ars­dótt­ir og Malín Brand voru hand­tekn­ar í lok maí, grunaðar um að hafa sent bréf í pósti til for­sæt­is­ráðherra og kraf­ist þess að hann greiddi þeim til­tekna fjárupp­hæð. Fjár­mun­ina átti að skilja eft­ir á ákveðnum stað sunn­an Valla­hverf­is­ins í Hafnar­f­irði. Þar hand­tók lög­regla kon­urn­ar.

Í sam­tali við mbl.is sagðist Malín hvorki hafa komið ná­lægt bréf­inu né send­ingu þess. Sagðist hún aðeins hafa bland­ast inn í málið vegna syst­ur sinn­ar. Sagði hún aðkomu sína að mál­inu hafa í raun aðeins verið þá að hafa verið með syst­ur sinni í bíl. Hafi hún að hluta vitað hvað til stæði en talið að eng­inn myndi taka málið al­var­lega þar sem aug­ljóst væri að veik mann­eskja ætti í hlut.

Nokkr­um dög­um síðar voru syst­urn­ar kærðar fyr­ir aðra fjár­kúg­un. Karl­maður kærði þær fyr­ir að hafa haft af sér 700 þúsund krón­ur. Syst­urn­ar sögðu þá pen­inga vera miska­bæt­ur vegna nauðgun­ar en maður­inn átti að hafa nauðgað Hlín. Eft­ir að maður­inn kærði fjár­kúg­un­ina kærði Hlín hann fyr­ir nauðgun. Það mál er í rannsókn að sögn lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert