Vilja Höllu Tómasdóttur á Bessastaði

Tæplega 800 manns hafa lýst yfir stuðningi sínum á Facebook-síðu þar sem skorað er á Höllu Tómasdóttur, frumkvöðul og fjárfesti, að gefa kost á sér í embætti forseta Íslands í forsetakosningunum sem fyrirhugaðar eru á næsta ári.

„Við skorum á Höllu Tómasdóttur að gefa kost á sér í embætti forseta Íslands. Höllu fylgir bjartsýni og áræðni, hún er verðugur fulltrúi þjóðarinnar,“ segir á síðunni sem sett var upp 1. desember og ennfremur: „Halla hefur kraftinn, jákvæðnina og hlýjuna til að verða góður forseti. Við þurfum forseta sem fyllir okkur eldmóði og bjartsýni, forseta sem verður okkur samferða inn í framtíðina. [...] Með Höllu mun Ísland eignast hvetjandi og uppbyggilegan forseta sem í senn mun reynast góður samferðamaður og verðugur fulltrúi á alþjóðlegum vettvangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert