Krapaél og frost suðvestanlands

Strætóskýli við Háteigsveg splundraðist í veðurofsanum í gær.
Strætóskýli við Háteigsveg splundraðist í veðurofsanum í gær. mbl.is/Styrmir

Á fjallvegum suðvestan- og vestanlands verða krapaél síðdegis og frystir undir kvöld. Almennt kólnar í kvöld og nótt og hitinn fer þá niður fyrir frostmark á ný víða um land. Greiðfært er að mestu suðvestanlands en þó eru hálkublettir á Sandskeiði.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Þar segir einnig að vind lægi smám saman á landinu í dag, um leið og lægðin grynnist og fjarlægist landið vestur af.

Um færð og aðstæður segir:

Greiðfært er að mestu suðvestanlands en þó eru hálkublettir á Sandskeiði.

Hálkublettir eru víða á Vesturlandi. Auður vegur er við Hafnarfjall og að mestu á Snæfellsnesi en hálka er þó á Fróðárheiði.

Slæmt veður er enn á Vestfjörðum og eru því nokkrir fjallvegir enn lokaðir.

Fara þarf um merkta hjáleið í Blönduhlíð í Skagafirði og því verða einhverjar umferðartafir þar í dag og næstu daga. Norðvestanlands er víða hálka eða hálkublettir en krapi á Öxnadalsheiði.
Norðaustanlands er hálka eða flughálka.

Á Austurlandi er flughálka á láglendi en hálka á flestum fjallvegum. Flughált er þó á Vopnafjarðarheiði og óveður.

Suðaustanlands er greiðfært.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert