Óvissustigi aflétt

Ljóst er að illa hefði getað farið ef fólk hefði …
Ljóst er að illa hefði getað farið ef fólk hefði ekki hlýtt tilmælum yfirvalda vegna óveðursins. mbl.is/Styrmir

Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjóra landsins ákveðið að aflétta óvissustigi vegna óveðurs sem lýst var yfir í gærmorgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglustjórum gekk aðgerðin í gær vel, þrátt fyrir mikinn veðurham víða.

Þetta kemur fram í frétt á vef Almannavarna.

Aðgerðastjórnir voru virkjaðar í öllum umdæmum landsins og var undirbúningur almennt til fyrirmyndar. Ferðaþjónustan upplýsti erlenda ferðamenn um veðurspána og þeir virtu tilmæli almannavarna um að vera ekki á ferðinni. Sama má segja um allan almenning sem tók tilmælunum vel og var kominn í hús í tímanlega fyrir veðrið. Þetta leiddi til þess að ekki sköpuðust vandræði á vegum úti þannig að björgunarsveitarmenn gátu einbeitt sér að því að bjarga verðmætum. Þetta sýnir að undirbúningur er mikilvægur þegar búast má við ofsaveðri eins og gekk yfir landið gær. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vill þakka almenningi, viðbragðsaðilum og öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum sem leiddi til að allt gekk stórslysalaust fyrir sig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert