Rafmagn tekið af miðbæ Akureyrar

Frá Akureyri.
Frá Akureyri. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Taka þarf rafmagn af miðbæ Akureyrar klukkan 18:15 í um það bil klukkustund vegna viðgerða. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Norðurorku. Nýjum spenni hefur verið komið fyrir í dreifistöð í miðbænum og þarf að tengja hann við annan búnað stöðvarinnar.

Bilun varð í dreifistöðinni með þeim afleiðingum að rafmagnsleysi hefur verið eða takmörkuð rafmagnsafhending á allstóru svæði í miðbænum. „Viðskiptavinir eru beðnir velvirðingar á óþægindum vegna þessara bilana,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert