Sæmundur fróði hífður upp

Sæmundur fróði hífður upp.
Sæmundur fróði hífður upp. mbl.is/Golli

Verið er að hífa bátinn Sæmund fróða upp úr gömlu höfninni í Reykjavík. Báturinn, sem er í eigu Háskóla Íslands, sökk aðfaranótt þriðjudags í óveðrinu sem gekk yfir landið.

Búið er að dæla úr bátnum og hreinsa út dót. Beðið er eftir öðrum krana sem mun ljúka við að hífa hann upp, eins og vitað var fyrirfram. 

Hinn báturinn sem sökk í höfninni, Glaður, var hífður upp í gær og gekk sú framkvæmd eins og í sögu.

Báturinn þegar hann var enn ofan í sjónum.
Báturinn þegar hann var enn ofan í sjónum. mbl.is/Golli
Málin rædd áður en hafist var handa.
Málin rædd áður en hafist var handa. mbl.is/Golli
Skömmu áður en Sæmundur fróði var hífður upp.
Skömmu áður en Sæmundur fróði var hífður upp. mbl./Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert