Sigmundur Davíð: Toppari þráir athygli

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. mbl.is/Styrmir Kári

„Fyrir allmörgum árum var ég staddur í samkvæmi þar sem einn af gestunum gerði sig stöðugt meira gildandi. Það var sama hvaða umræðuefni kom upp, alltaf tróð maðurinn sér inn í samtölin (stundum fleiri en eitt í einu) eða talaði yfir fólk til að útskýra að hann vissi meira um málið en aðrir, hann hefði gert hlutina öðruvísi og betur.“

Á þessum orðum hefst grein Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra í Fréttablaðinu í dag. Ljóst má vera að þar svarar ráðherrann skrifum Kára Stefánssonar þó hann nefni hann aldrei á nafn.

Frétt mbl.is: Fjársveltið þjóðinni til skammar

„Enginn var betri í viðskiptum en hann en samt var ekki til meiri mannvinur, því hann mátti að eigin sögn ekkert aumt sjá,“ heldur Sigmundur Davíð áfram. „Það var líka sama hvaða sögur aðrir gestir sögðu, alltaf bætti hann um betur. Hann hafði gert merkilegri hluti, séð meira en aðrir og unnið stærri sigra. Hann taldi sig líka alltaf kunna betri brandara en hinir og sá því enga ástæðu til að leyfa öðrum að ljúka sínum skemmtisögum áður en hann kom með aðra betri.“

Sigmundur Davíð segir að að hvert sinn sem þessi maður hafi tekið orðið hafi það auk þess verið gert af „yfirlæti og gefið til kynna að allir aðrir en hann væru fábjánar. Þegar reynt var að leiðrétta eina eða tvær af fjölmörgum rangfærslum þessa samkvæmisljóns brást hann hinn versti við og gerði lítið úr þeim sem dirfðust að gera slíkar athugasemdir.“

Sigmundur segir að sér hafi fundist skrítið að fylgjast með þessari framgöngu mannsins og umburðarlyndi gestanna. „Stúlka sem sat við hliðina á mér hallaði sér þá upp að mér og sagði: „Hefur þú ekki hitt hann áður? Hann er alltaf svona, þetta er mesti toppari landsins.““

Forsætisráðherra segir að honum hafi nokkrum sinnum verið hugsað til topparans í samkvæminu að undanförnu „vegna yfirlýsinga þjóðkunns athafnamanns og hugsanlegs verðandi forsetaframbjóðanda. Sá bætir stöðugt í og skrifar nú enn eina greinina um hvað allir séu vitlausir, stjórnmálamenn og þjóðin, og standi illa að málum.“

Hinn sérfróði athafnamaður

Svo skrifar Sigmundur Davíð: 

„Það sem topparar þrá umfram allt annað er athygli og því er ég eflaust að veita jákvæða styrkingu með því að svara slíkum manni. Hann mun sjálfsagt líta á það sem tækifæri til að útskýra að nú hafi sannast enn betur en áður hversu illa gefnir og illviljaðir stjórnmálamenn séu. Það er samt ekki hægt að láta það óátalið þegar maður sem talinn er gáfaður á sumum sviðum heldur fram hreinum ósannindum og nýtir um leið veikindi fólks til sjálfsupphafningar.“

Gagnstætt því sem haldið er fram í nýjustu grein „hins sérfróða athafnamanns“ ríkir ágæt samstaða um það bæði meðal almennings og stjórnmálamanna að forgangsraða í þágu heilbrigðiskerfisins, skrifar Sigmundur. Hann segir að það hafi núverandi ríkisstjórn gert í meira mæli en fyrri ríkisstjórnir. Það sem af er kjörtímabilinu, sem er rúmlega hálfnað, hafi framlög til Landspítalans verið aukin um 30%.

Framlög til spítalans hafa aldrei verið meiri og það sama á við um heilbrigðiskerfið og velferðarkerfið í heild, skrifar Sigmundur. „Geti sérfræðingurinn toppað það með því að benda á annað vestrænt ríki sem hefur aukið jafnmikið við framlög til heilbrigðismála á sama tímabili (eða nokkru öðru tímabili í seinni tíð) hvet ég hann til að benda á slík dæmi.“

Bull og óheiðarleiki

Sigmundur segir að það megi „öllum vera ljóst hversu rangt og beinlínis óheiðarlegt það er að saka þau stjórnvöld sem hafa forgangsraðað mest í þágu heilbrigðismála um að vera viljandi að svelta heilbrigðiskerfið. En slík framganga er líka skaðleg því að við þurfum þrátt fyrir allt að ná enn betri árangri á sviði heilbrigðismála og við þurfum að vera í aðstöðu til að setja enn meira, og miklu meira, fjármagn í málaflokkinn á komandi árum og áratugum.“

Stjórnvöld verði því að geta reitt sig á ráðgjöf þeirra sem best þekkja til. „Galgopaháttur í bland við rangfærslur hjálpar ekki til við það og enn síður lausnir byggðar á ósannindum.“

Sigmundur Davíð skrifar að „topparinn“ telji að það sé aðeins fyrir „gunguskap stjórnvalda að ekki séu til 150 milljarðar til að skella í heilbrigðiskerfið á einu bretti og dregur þar fram eitt ómerkilegasta bull þeirra sem gremst að stjórnvöldum skuli hafa tekist það sem áður var sagt ómögulegt við losun hafta og uppgjör bankanna. Það er sú fullyrðing að uppgjör slitabúa bankanna og losun fjármagnshafta skili bara 300 milljörðum í ríkissjóð en ekki 850 eins og boðað hafi verið.“

Forsætisráðherrann segir það merkilegt ef maður sem fari svo frjálslega með tölur geti rekið stórt fyrirtæki, a.m.k. ef hann getur rekið það með hagnaði. „Þótt losun hafta sé flókið mál vita flestir sem hafa gefið sér 5 mínútur eða svo í að kynna sér málið að þetta er ósatt.“

Staðreyndir þvælast ekki fyrir toppurum

Svo skrifar Sigmundur:

„Eitt hef ég bent á frá því áður en topparinn eða félagar hans vissu yfirhöfuð að til væri vandamál sem þyrfti að leysa, og væri hægt að leysa, á þann hátt að láta slitabúin greiða mörg hundruð milljarða. Það var sú staðreynd að ekki yrði hægt að nota allt fjármagnið í framkvæmdir eða uppbyggingu innviða sama hversu þörf þau verkefni væru. Slíkt myndi þýða að verið væri að nota fjármagn sem er til þess ætlað að verja efnahagslegan stöðugleika, með því að greiða niður skuldir, í að kynda undir verðbólgu og óstöðugleika.

Með því, hins vegar, að nýta fjármagnið til að greiða niður skuldir og bæta afkomu ríkisins og samfélagsins til allrar framtíðar verður hægt, ár frá ári, á sjálfbæran hátt, að halda áfram að styrkja og efla heilbrigðiskerfið og aðrar grunnstoðir samfélagsins.

Sá sem rekur fyrirtæki hlýtur að gera sér grein fyrir því að það er ekki hægt að reka fyrirtækið endalaust með tapi og taka bara meiri og meiri lán, eða hvað? Það sama á við ríkissjóð. Það að eyða fullt af peningum á einu bretti, ýta undir verðbólgu og halda svo bara áfram að taka lán bitnar á þeim sem á eftir koma, þ.e. kynslóðum og þar með talið sjúklingum framtíðarinnar.

En topparar láta staðreyndir eða framtíðina ekki þvælast mikið fyrir sér. Fyrir þá er aðalatriðið að vera maður líðandi stundar, sá sem fangar athyglina og verður vinsæll á meðal trúgjarnra um sinn. Aðrir geta séð um að fást við afleiðingarnar.“

Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. mbl.is/Golli
Landspítali háskólasjúkrahús við Hringbraut.
Landspítali háskólasjúkrahús við Hringbraut. Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert