Banaslys í Öræfum

mbl.is

Einn er látinn eftir alvarlegt bílslys á einbreiðri brú yfir Hólá, austan við Hnappavelli í Öræfum. Hinn látni var erlendur ferðamaður.

Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá lög­regl­unni á Höfn í Hornafirði skullu tvær bif­reiðar sam­an á ein­breiðri brú. Í báðum öku­tækj­um voru er­lend­ir ferðamenn, alls sex manns. Í öðrum bílnum var fjögurra manna fjölskylda en í hinum tveir samferðamenn.

Hinn látni var ökumaður annars bílsins. Hinir eru, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu, ekki lífshættulega slasaðir.

Vettvangur slyssins er enn lokaður og vinnur lögreglan að rannsókn. Aðstæðum á slysstað er lýst þannig að talsverð hálka er á vegi.

TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslu Íslands, er nú á vettvangi.

Fyrri frétt mbl.is:

Hringvegurinn lokaður vegna slyss

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert