Þór til bjargar Fróða

Varðskip gæslunnar í Reykjavíkurhöfn.
Varðskip gæslunnar í Reykjavíkurhöfn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Varðskipið Þór er nú á leið að togskipinu Fróða II ÁR-32, sem statt er suðvestur af Reykjanesi. Fróði fékk veiðarfæri í skrúfuna í nótt og mun Þór draga hann til hafnar þar sem veiðarfærin verða fjarlægð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

„Nærstaddur togari tók Fróða II í tog í nótt en dráttarbúnaður slitnaði ítrekað og var því óskað eftir aðstoð varðskips. Áætlað er að varðskipið Þór verði komið á vettvang um kl. 13 í dag. Veðuraðstæður á staðnum eru talsvert erfiðar en vindhraði úr austri er allt að 25 metrar á sekúndu,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert