378 fá listamannalaun

Andri Snær Magnason rithöfundur er einn þeirra sem hlýtur listamannalaun …
Andri Snær Magnason rithöfundur er einn þeirra sem hlýtur listamannalaun í ár. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samtals fá 378 listamenn listamannalaun árið 2016 samkvæmt ákvörðun úthlutunarnefndar listamannalauna. Þar af 78 listamenn í 14 sviðslistahópum. Alls bárust 946 umsóknir frá 1.581 umsækjendum samkvæmt fréttatilkynningu.

Til úthlutunar voru 1.606 mánaðarlaun en sótt var um 11.381 mánði sem er rúmlega 20% aukning frá fyrra ári. Samkvæmt fjárlögum 2016 nema starfslaun listamanna 339.494 kr. á mánuði og er um verktakagreiðslur að ræða.

Meðal þeirra sem hljóta listamannalaun í ár eru rithöfundarnir Andri Snær Magnason, Elísabet Jökulsdóttir, Kristín Steinsdóttir, Hallgrímur Helgason og Vilborg Davíðsdóttir og tónlistarmennirnir Svavar Knútur Kristinsson og Valgeir Guðjónsson.

Nánar á vefsíðu Rannís

Frétt mbl.is: 267 fá listamannalaun

Elísabet Jökulsdóttir
Elísabet Jökulsdóttir mbl.is/Golli
Hallgrímur Helgason
Hallgrímur Helgason mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert