Bílvelta á Akureyri

Mynd úr safni
Mynd úr safni mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Ökumaður slapp ómeiddur eftir að hafa velt bíl sínum á Hlíðarbraut á Akureyri í gærkvöldi, að sögn lögreglu.

Óhappið átti sér stað þegar ökumaðurinn ætlaði að forða því að lenda aftan á öðrum bíl þegar umferðin stöðvaðist skyndilega. Hann sveigði bifreiðinni og ók upp í snjóruðning en ekki vildi betur til en svo að hann hafnaði á ljósastaur og valt. Bifreiðin er töluvert skemmd en ökumaðurinn slapp vel frá óhappinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert