Ekki hefur náðst sátt um nokkur álitamál

Páll Þórhallsson, sem sést hér fyrir miðju, er nýr formaður …
Páll Þórhallsson, sem sést hér fyrir miðju, er nýr formaður stjórnarskrárnefndar. mbl.is/Kristinn

Stjórnarskrárnefnd fundar í dag og aftur næsta mánudag. Kapp er lagt á að ná sameiginlegri niðurstöðu hinnar þverpólitísku nefndar um tillögur um stjórnarskrárbreytingar.

Nefndin hyggst skila forsætisráðherra tillögum sínum áður en Alþingi kemur saman á nýjan leik, sem verður þann 19. janúar nk.

Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins eru enn nokkur álitamál í umfjöllun nefndarinnar, sem ekki hefur náðst sátt um. Þar má nefna ákvæðið um þjóðaratkvæðagreiðslu, en ekki er sátt um það í nefndinni, hversu víðtækt það eigi að vera og hvers konar lög frá Alþingi 15% kosningabærra manna geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert