Eldur í blaðagámi

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um eld í blaðagámi við Langholtsskóla. Slökkvilið mætti á staðinn og slökkti eldinn. Gámurinn er skemmdur. Ungir drengir sáust leika sér nálægt gámnum með skotelda áður en kviknaði í. Þeir fundust ekki, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar.

 Þá handtók lögreglan mann í Vesturbæ Reykjavíkur í dag. Sá var í vímu og var vistaður í fangaklefa vegna heimilisofbeldis og einnig annarrar líkamsárásar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert