Bylting í greiningu sjúkdóma

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala. Úr einkasafni

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala, tók í dag fyrstu skóflustunguna að húsnæði sem mun hýsa nýjan jáeindaskanna. Húsnæðið verður byggt við Landspítalann á Hringbraut, aðlægt skyldri starfsemi til að ná sem mestri skilvirkni og þægindum fyrir sjúklinga.

Gert er ráð fyrir að húsnæðið verði tilbúið í september en þá verður skannanum og búnaði komið fyrir og hann prufukeyrður. Áætlað er að skanninn verði kominn í notkun um næstu áramót.

Íslensk erfðagreining færði íslensku þjóðinni skannann að gjöf sem og allan tilheyrandi tækjakost og sérhæft húsnæði undir hann. Verðmæti gjafarinnar er rúmar 840 milljónir.

Páll tekur fyrstu skóflustunguna.
Páll tekur fyrstu skóflustunguna. Úr einkasafni

Í tilkynningu frá Landspítalanum kemur fram að flókinn og umfangsmikill búnaður fylgi skannanum, svo sem öreindahraðall sem framleiðir geislavirk efni sem leita í sjúka vefi líkamans. Jáeindaskanni er oftast notaður í krabbameinsmeðferðum en hann er einnig hægt að nýta í tauga-, hjarta og gigtlækningum.

Í tilkynningunni segir að skanninn muni valda byltingu í greiningu og meðferð sjúkdóma en árlega hafa um 200 sjúklingar farið í jáeindaskanna til Danmerkur en áætlað er að um 2.000 manns muni nýta skannann hér á landi á ári hverju.

Úr einkasafni

Skanninn gefur nákvæmar upplýsingar um staðsetningu og dreifingu krabbameina en með slíkar upplýsingar er hægt að gera geislameðferð markvissari og fækka óþarfa skurðaðgerðum. Þá mun skanninn gefa betri upplýsingar um útbreiðslu sjúkdóma hjá um þriðjungi sjúklinga og þannig breyta meðferð þeirra töluvert. Með markvissari meðferð munu aukaverkanir minna og batahorfur aukast.

Einnig verður hægt að greina hvernig sjúkdómar bregðast við meðferð og því hægt að grípa fyrr inn í ef gera þarf breytingar á meðferðinni. Þá mun skanninn nýtast við rannsóknar- og vísindastarf á Íslandi en hann er í dag orðinn sjálfsagður hluti af rannsóknaraðferðum við marga sjúkdóma.

Úr einkasafni
Úr einkasafni
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert