Eiríkur og Sigurður tókust á

Sigurjón Árnason (t.h) sést hér fara yfir stöðu mála með …
Sigurjón Árnason (t.h) sést hér fara yfir stöðu mála með verjanda sínum, Sigurði G. Guðjónssyni, við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur þegar málið var flutt þar fyrir um ári síðan. mbl.is/Árni Sæberg

Sigurður Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður og Eiríkur Tómasson, dómari við Hæstarétt, tókust nokkuð harkalega á í flutningi markaðsmisnotkunarmáls Landsbankans fyrir dómstólnum í dag. Spurði Eiríkur Sigurð ítrekað út í tvö atriði sem telja má að skipti talsverðu máli um sekt eða sakleysi Sigurjóns Árnasonar, umbjóðanda Sigurðar og fyrrum bankastjóra Landsbankans, í málinu.

Sannar þetta ekki aðkomu Sigurjóns að ákvörðun í málinu?

Sigurður hafði í flutningi sínum farið yfir málið, aðkomu Sigurjóns að því, mögulega vitneskju hans í ákveðnum atriðum og þar af leiðandi mögulega ábyrgð hans og fyrirmæli hans sem tengjast meintri markaðsmisnotkun.

Sigurjón sat meðal annars í fjármálanefnd bankans sem fékk upplýsingar vikulega um stöðu bankans í eigin bréfum. Sigurður var að fara yfir minnisblað sem hafði komið fyrir nefndina þegar Eiríkur spurði hann hvort þetta bréf sannaði ekki einmitt aðkomu Sigurjóns að ákvörðun í málinu og þar með væntanlega aðild að meintri markaðsmisnotkun.

Sigurður lét þetta ekki slá sig út af laginu og svaraði Eiríki því að svo væri ekki, heldur væri í því farið yfir aðkomu deildar eigin viðskipta að eigin viðskiptum í bankanum, en ekkert um ákvarðanir til breytinga á heimildum deildarinnar sem hún hafði þegar varðandi að eiga í eigin viðskiptum. Fylgdu nokkrar spurningar í kjölfarið frá Eiríki sem Sigurður svaraði.

Eiríkur Tómasson, hæstaréttardómari.
Eiríkur Tómasson, hæstaréttardómari. Rax / Ragnar Axelsson

Af hverju vildi bankinn ekki fara yfir 5%?

Flutningur Sigurðar hélt svo áfram, en undir lokin óskaði Eiríkur eftir svari við einni spurningu. Vildi hann fá að vita af hverju bankinn hefði lagt svona mikla áherslu á að fara ekki upp fyrir 5% mörkin, en þar á hann við af hverju bankinn vildi ekki eignast meira en 5% hlut í sjálfum sér. Kallar það á flöggun á markaði, þar sem bankinn lætur vita af eignastöðu sinni. Sagði Eiríkur að miðað við málflutning verjanda í málinu hefðu flestir aðilar á markaði haft vitneskju um þessi miklu viðskipti bankans og ætti því ekki að koma neinum á óvart þó eignastaðan færi örlítið yfir eða undir 5% mörkin.

Sigurður svaraði því til að stefna bankans hefði verið að fara ekki yfir þessi mörk til að gefa ekki út nein merki á markaðinn sem gætu breytt viðhorfi fólks til fjárfestinga. „Skiptir það máli ef þetta er svona útbreidd vitneskja?“ spurði Eiríkur þá aftur. „Það skiptir máli að það sé regla á hlutunum,“ svaraði Sigurður.

Ítrekaði Eiríkur spurningu sína þrisvar sinnum áður en Sigurður svaraði því til að bankinn hefði ekki viljað fara yfir 5% mörkin heldur halda sig þar fyrir innan. Með þessu virðist Eiríkur hafa fengið svar við spurningu sinni og þakkaði Sigurði fyrir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert