Vann tæpar 15 milljónir í lottó

Lottó
Lottó

Einn hepp­inn spilari var með all­ar töl­ur rétt­ar í út­drætti kvölds­ins í lottó­inu. Hann nældi sér þar með í all­an pott­inn og fær tæpar 15 millj­ón­ir króna í vinn­ing. Miðinn var seldur í Vídeómarkaðnum að Hamraborg 20 í Kópavogi.

Fjórir skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hver um sig um 161 þúsund krónur. Miðarnir voru seldir í N1 við Ægisíðu, Olís Álfheimum, Samkaup Úrvali á Grundafirði og einn var í áskrift.

Einn var með fimm réttar tölur í Jókernum og fær hann 2 milljónir króna. Miði sá er í áskrift.

Þá voru þrír með fjórar réttar tölur í Jókernum og fá þeir hundrað þúsund krónur í vasann. Miðarnir voru seldir á Olís Neskaupstað, Skýlinu Vestmannaeyjum og Veganesti við Hörgárbraut á Akureyri. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert