Frá velferðarráðherra til forsætisráðherra

Matthías Imsland.
Matthías Imsland. mbl.is/Ómar Óskarsson

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra  hefur ráðið Matthías Pál Imsland sem aðstoðarmann sinn. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu en Matthías hefur undanfarin ár starfað sem aðstoðarmaður Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra.

„Matthías er 41 árs. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni, BA-prófi frá Háskóla Íslands í stjórnmálafræði og síðar MS-prófi frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð. Þá hefur hann stundað nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og stjórnunarnám við North Park University í Chicago í Bandaríkjunum,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. 

Áður en Matthías hóf störf í velferðarráðuneytinu starfaði hann sem ráðgjafi fyrir erlend fyrirtæki á sviði framtaksfjárfestinga. Þar áður var Matthías framkvæmdastjóri rekstrarsviðs flugfélagsins WOW-air og fyrir stofnun þess var hann forstjóri Iceland Express.

Samkvæmt tilkynningu ráðuneytisins starfaði Matthías um tíma í opinberri stjórnsýslu, fyrst sem sviðsstjóri fræðslu-, félags- og menningarsviðs á Blönduósi og síðar í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu. Að loknu námi starfaði hann hjá Símanum við ýmis stjórnunarstörf. 

„Verkefni Matthíasar í forsætisráðuneytinu verða meðal annars á sviði stefnumörkunar og samræmingar til að styðja við forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar. Forsætisráðherra hefur haft einn aðstoðarmann, Jóhannes Þór Skúlason, frá því að Ásmundur Einar Daðason lét af starfi aðstoðarmanns á síðasta á ári. Með ráðningu Matthíasar verða aðstoðarmennirnir aftur tveir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert