Hlaut töluverða áverka í Bláfjöllum

Drengurinn var að stökkva á snjóbretti þegar slysið varð.
Drengurinn var að stökkva á snjóbretti þegar slysið varð. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Unglingspiltur var fluttur á slysadeild Landspítalans í kvöld eftir slys í Bláfjöllum. Hlaut hann töluverða áverka eftir stökk á snjóbretti. Tveir sjúkrabílar voru sendir á skíðasvæðið og var pilturinn fluttur með forgangi til Reykjavíkur.

Samkvæmt upplýsingum frá Einari Bjarnasyni, rekstrarstjóra Bláfjalla, varð slysið á snjóbrettasvæðinu og var drengurinn fluttur þaðan af starfsfólki svæðisins. 

Uppfært kl. 10.10:
Samkvæmt upplýsingum frá Landsspítalanum er strákurinn í rannsóknum og ekki hægt að segja nánar um líðan hans að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert