Ólafur Ragnar ræddi við Ban Ki-moon

Ban Ki-moon og Ólafur Ragnar Grímsson.
Ban Ki-moon og Ólafur Ragnar Grímsson. Ljósmynd/Forsetaembættið

Forseti átti fund með Ban Ki-moon framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna í tengslum við Heimsþing hreinnar orku sem haldið er í Abu Dhabi. Rætt var um hið sögulega samkomulag i loftslagsmálum sem náðist í París og mikilvægi aukinnar samvinnu á Norðurslóðum.

Þá var einnig fjallað um framlag Arctic Circle til þeirrar samvinnu en Ban Ki-moon studdi stofnun Hringborðsins á sínum tíma og sendi ávarp á fyrsta þing þess í Reykjavík.

Stóraukin áhersla á nýtingu hreinnar orku er kjarninn í árangri í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og var á fundinum áréttað mikilvægi reynslu og þekkingar Íslendinga í þeim efnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert