Aflétti þvingunaraðgerðum gegn Íran

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.
Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra.

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra undirritaði í dag reglugerð sem afléttir öllum efnahagslegum og fjárhagslegum þvingunaraðgerðum gegn Íran sem tengjast kjarnorkumálum.

 Þvingunaraðgerðirnar  varða fjármagnshreyfingar, banka- og tryggingamál, olíu, gas og efni unnin úr jarðolíu, skipaflutninga, skipasmíðar og flutninga, gull, aðra eðalmálma, peningaseðla og mynt, málma, hugbúnað og frystingu fjármuna og ferðabann, sem er aflétt á vissa einstaklinga og lögaðila.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu. Undirritunin fylgir í kjölfar þess að Alþjóðakjarnorkumálastofnunin  hefur staðfest að Íran uppfylli nú nauðsynleg skilyrði um skuldbindingar á sviði kjarnorkumála, sem sett voru fram í sameiginlegri heildarframkvæmdaráætlun 14. júlí síðastliðin. Að henni stóðu Bandaríkin, Bretland, Kína, Frakkland, Rússland, Þýskaland og Evrópusambandið. 

„Það er ástæða til að fagna þessum áfanga, sem er sönnun þess að viðskiptaþvinganir geta haft raunveruleg áhrif á alþjóðavettvangi. Alþjóðlegur samtakamáttur og samningagerð eru mun farsælli leið til lausnar á deilumálum en vopnaskak,“ er haft eftir Gunnari Braga í tilkynningu ráðuneytisins.

Ekki eru allar þvingunaraðgerðir felldar niður. Aðgerðir sem varða vopnaviðskipti, eldflaugatækni, frystingu fjármuna og ferðabann á tiltekna einstaklinga og lögaðila, vissar vörur, tækni og þjónustu á kjarnorkusviði sem verða háð útflutningsleyfum, vissa málma og hugbúnað á kjarnorkusviði sem verða háð útflutningsleyfum. 

Allar þvingunaraðgerðir sem varða mannréttindabrot Írans, stuðning Írans við hryðjuverkastarfsemi og aðrar aðgerðir sem ekki tengjast kjarnorkumálum gilda áfram.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert