Kári safnar undirskriftum

Mynd úr safni en Íslendingar eyða því sem nemur 8.7% …
Mynd úr safni en Íslendingar eyða því sem nemur 8.7% af vergri landsframleiðslu í heilbrigðismál og er það langt undir meðaltali á Norðurlöndum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Undirskriftasöfnun Kára Stefánssonar til stuðnings kröfunni um endurreisn heilbrigðiskerfisins hefst í dag en Kári telur að stjórnvöld hafi vannært íslenskt heilbrigðiskerfi, að  því marki að það sé ekki lengur þess megnugt að sinna hlutverki sínu sem skyldi.

Hér er hægt að skrifa undir

Kári Stefánsson.
Kári Stefánsson. mbl.is/Kristinn


„Heilbrigðiskerfi er einn af hornsteinum nútímasamfélags og sýnir vilja þess til þess að hlúa að þeim sem eru sjúkir og meiddir. Gott heilbrigðiskerfi endurspeglar sjálfsagða samhygð en lélegt heilbrigðiskerfi  óásættanlegan kulda gagnvart þeim sem eru hjálpar þurfi. Það er okkar mat að á síðasta aldarfjórðungi hafi stjórnvöld vannært íslenskt heilbrigðiskerfi, að  því marki að það sé ekki lengur þess megnugt að sinna hlutverki sínu sem skyldi.

Það hefur ekki fylgt framþróun í læknisfræði, hvorki hvað snertir notkun á tækjabúnaði né bestu lyfjum og helstu stofnanir þess eru hýstar á þann veg að það kemur í veg fyrir að hægt sé að veita nægilega mikla og góða þjónustu. Hnignun heilbrigðiskerfisins hefur að mestu leyti verið óháð því hvaða stjórnmálaflokkar hafa verið  við völd vegna þess að hún hefur verið stöðug og samfelld.

Íslendingar eyða því sem nemur 8,7% af vergri landsframleiðslu í heilbrigðismál og er það langt undir meðaltali á Norðurlöndum. Það er mat þeirra sem gerst þekkja til að við þurfum að eyða allt að 11% af vergri landsframleiðslu í heilbrigðismál vegna þess að við erum fá og dreifð sem gerir þjónustuna dýrari en meðal stærri þjóða í þéttbýlli löndum. Þar sem kjörnir fulltrúar þjóðarinnar um aldarfjórðungsskeið hafa ekki haft að því frumkvæði að fjármagna heilbrigðiskerfið eins og skyldi ætlum við undirrituð að taka frumkvæðið með eftirfarandi kröfu,“ segir í tilkynningu sem Kári Stefánsson hefur sent frá sér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert