Sigmundur vill makaskipti á lóðum

Hafnartorg, samkvæmt núverandi hugmyndum arkitekta.
Hafnartorg, samkvæmt núverandi hugmyndum arkitekta. PK arki­tekt­ar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, vill skoða makaskipti á lóðum í miðborginni til að koma í veg fyrir það sem hann telur allt of mikið byggingarmagn á lóðinni við Hafnartorg, gegnt stjórnarráðinu.

Morgunblaðið sagði frá því í morgun að ráðuneytið ætti í viðræðum við fasteignafélagið Landstólpa um endurhönnun á byggingum á lóðinni. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 kom fram að viðræður væru í gangi um að skipta á lóðinni og lóð ríkisinsvið hlið sjávarútvegsráðuneytisins, milli Sölvhólsgötu og Skúlagötu. Gert er ráð fyrir að niðurstöður úr þessum viðræðum liggi fyrir á næstu þremur vikum. Þetta kom fram í sjónvarpsfréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra. mbl.is/Árni Sæberg

Sigmundur hefur áður gagnrýnt þau byggingaráform sem liggja fyrir varðandi uppbyggingu reitsins, en í viðtali við Morgunblaðið fyrr í mánuðinum kallaði hann þau skipulagsslys. „Ef þarna yrði byggt með þeim hætti sem dregið hef­ur verið upp á þess­um mynd­um yrði það lík­lega seinna álitið eitt mesta skipu­lags­slys í miðbæ Reykja­vík­ur í seinni tíð og jafn­vel alla tíð,“sagði Sigmundur.

Í fréttum Stöðvar 2 sagði Sigmundur að með þessu væri hægt að minnka byggingarmagn á Hafnartorgi og reisa hús sem væri borginni og Íslandi til sóma á póstkorti. Sagði hann jafnframt til skoðunar að nýta lóðina við Hafnartorg til fyrir forsætisráðuneytið og önnur ráðuneyti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert