Þolandi heimilisofbeldis á sjúkrahús

Landspítali háskólasjúkrahús
Landspítali háskólasjúkrahús mbl.is/Ómar Óskarsson

Tilkynnt var um heimilisofbeldi og líkamsárás í heimahúsi í Hraunbæ á þriðja tímanum í nótt. Þolandi ofbeldisins var fluttur á Landspítalann til aðhlynningar. Árásarmaðurinn er hins vegar vistaður í fangageymslu og verður hann yfirheyrður síðar vegna málsins. 

Skömmu eftir miðnætti var tilkynnt um heimilisofbeldi og líkamsárás í heimahúsi í Breiðholti. Árásarmaðurinn var handtekinn og er vistaður í fangageymslu vegna málsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert