Brotist inn í bíla í miðborginni

mbl.is/Þórður

Tilkynnt var um innbrot í þrjár bifreiðar í miðborginni klukkan 08:40 í morgun.  Hliðarrúður voru brotnar og úr einni bifreiðinni var stolið en rótað til í hinum. 

Klukkutíma áður var tilkynnt um innbrot og þjófnað úr gám á byggingasvæði í í umdæmi lögreglustöðvar 4 sem hefur Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ á sinni könnu. Mikið af verkfærum var stolið.

Málin eru í rannsókn að því er fram kemur í dagbók lögreglu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert