Harður árekstur á Sauðárkróki

Tveir bílar skullu saman á Aðalgötu á Sauðárkróki.
Tveir bílar skullu saman á Aðalgötu á Sauðárkróki. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Tveir bílar skullu harkalega saman á Aðalgötu á Sauðárkróki  um tvöleytið í dag. Ökumaður annars bílsins slasaðist lítillega og var hann fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri.

Bíllinn sem hann ók er talinn ónýtur.

Að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki er maðurinn sem slasaðist um tvítugt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert