Veglegir styrkir til Vigdísarstofnunar

Fulltrúar fyrirækjanna ellefu ásamt Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, dótturdóttur …
Fulltrúar fyrirækjanna ellefu ásamt Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, dótturdóttur hennar, Aþenu Vigdísi, Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands, Guðmundi Hálfdanarsyni, forseta Hugvísindasviðs, Auði Hauksdóttur, forstöðumanni Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur, og Geir Sigurssyni, forseta Deildar erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda, í Hátíðasal Háskóla Íslands í dag. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Forsvarsmenn ellefu stórra fyrirtækja úr íslensku atvinnulífi og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, undirrituðu í dag samninga um veglega styrki til Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. Undirritunin fór fram í Hátíðasal Háskóla Íslands að viðstaddri Vigdísi Finnbogadóttur, Illuga Gunnarssyni mennta- og menningarmálaráðherra og fjölda annarra gesta.

Fyrirtækin sem standa að samningunum eru Landsbankinn, Icelandair Group, Radisson Blu Hótel Saga, Arion banki, Alvogen, Bláa Lónið, Kvika, Reginn, Íslandsbanki, Íslandshótel og N1. Styrkirnir eru allir nema einn til þriggja ára og nema árleg framlög frá 500 þúsundum til tveggja milljóna króna. Hæstu framlögin eru frá  Landsbankanum (6 milljónir), Icelandair Group (4,5 milljónir) og Radisson Blu Hótel Sögu (3,5 milljónir). Alvogen, Arion banki, Bláa Lónið, Kvika og Reginn leggja stofnuninni til 3 milljónir og Íslandsbanki, Íslandshótel og N1 1,5 milljón króna. Alls nema styrkirnir því 33,5 milljónum króna á samningstímanum.  

Styrkjunum verður varið til daglegrar starfsemi vegna undirbúnings Vigdísarstofnunar – alþjóðlegrar miðstöðvar tungumála og menningar, sem mun starfa undir merkjum Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Með starfsemi alþjóðlegu tungumálamiðstöðvarinnar er ætlunin að heiðra störf Vigdísar í þágu tungumála og halda áfram því brautryðjendastarfi sem hún hefur unnið á alþjóðavettvangi sem fyrsti og eini velgjörðarsendiherrra tungumála í heiminum hjá UNESCO.

Við sama tækifæri opnuðu Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra og Aþena Vigdís Eggertsdóttir, dótturdóttir Vigdísar, nýja heimasíðu Vigdísar á nokkrum tungumálum (www.vigdis.is). Vinnu við síðuna var hrundið af stað í tilefni af 100 ára afmæli kosningarréttar kvenna á síðasta ári fyrir styrk frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu og utanríkisráðuneytinu.

Á horni Suðurgötu og Brynjólfsgötu rís nú bygging Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur en hún mun hýsa alþjóðlegu tungumálamiðstöðina auk kennslu og rannsókna í erlendum tungumálum. Í tilkynningu Háskóla Íslands kemur fram að áætlað er að hún verði tekin í notkun um næstu áramót. Þar verður einnig Vigdísarstofa og aðstaða fyrir ráðstefnur og sýningar um framandi tungumál og menningu sem opnar verða gestum og gangandi. Sérstök áhersla verður lögð á að miðla upplýsingum um tengsl Íslands við umheiminn í sögu og samtíð til erlendra ferðamanna. Í þessu nýja þekkingarsetri felast gríðarleg tækifæri til nýsköpunar, ekki síst í tengslum við vísindastarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu.

Með veglegum framlögum sínum taka fyrirtækin höndum saman við Háskóla Íslands um að hrinda þessu metnaðarfulla verkefni í framkvæmd. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert