Fjórir voru fluttir á slysadeild eftir að tveir jeppar rákust harkalega saman á Sandgerðisvegi á Miðnesheiði upp úr klukkan hálffjögur í dag.
Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum er fólkið ekki lífshættulega slasað. Báðir jepparnir voru fluttir af vettvangi með kranabíl.
Jepparnir komu úr gagnstæðri átt en skafrenningur og hálka er á Miðnesheiði og hvetur lögreglan ökumenn til að fara varlega.