Úr gæsluvarðhaldi á morgun

Hótel Ljósaland.
Hótel Ljósaland. Ljósmynd/Vilhjámur H. Guðlaugsson

Ekki verður farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir karl­manni sem er grunaður um að hafa kveikt í Hót­el Ljósalandi í Saur­bæ í Dala­byggð aðfararnótt 31.janúar.

Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald 1. febrúar síðastliðinn og rennur það út á morgun. 

Laust fyr­ir klukk­an fimm að morgni 31. janúar barst til­kynn­ing um að ölvaður maður gengi ber­serks­gang við Hót­el Ljósa­land og fór lög­regla á vett­vang. Um hálf­tíma síðar barst til­kynn­ing­ um að eld­ur væri laus í bygg­ing­unni og var slökkvilið kallað út.

Maður­inn var hand­tek­inn á staðnum og færður í fanga­klefa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert