Ikea innkallar varhugaverð ljós

IKEA hvetur viðskiptavini sem eiga Hyby, Lock eða Rinna loftljós til að taka það tafarlaust niður og skila í IKEA. Það verður endurgreitt að fullu. IKEA hafa borist tilkynningar frá viðskiptavinum um að glerkúpull ljósanna hafi losnað og dottið niður. Í nokkrum tilfellum hlutust væg meiðsl af.


Hyby og Lock loftljósin hafa verið seld á öllum markaðssvæðum IKEA, Lock frá 2002 og Hyby frá 2012. Rinna loftljósið hefur verið selt í ellefu löndum í Evrópu og Kína frá 2010.

Skila má loftljósum í IKEA og fá að fullu endurgreitt. Kvittun er ekki skilyrði fyrir endurgreiðslu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert