Komið til móts við afbragðsnemendur

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra.
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra. mbl.is/Árni Sæberg

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur, að fenginni tillögu frá Menntamálastofnun, ákveðið að breyta fyrirkomulagi lögbundinna samræmdra könnunarprófa í grunnskólum.

Próf sem undanfarin ár hafa verið haldin að hausti í 10. bekk munu færast til vors í 9. bekk og því verður ekkert próf haldið í 10. bekk haustið 2016 en þeir sem verða í 10. bekk á næsta skólaári munu þreyta próf vorið 2017 á sama tíma og 9. bekkingar.

Þetta kemur fram á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins

Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, segir í samtali við mbl.is ýmis rök með því að nemendur taki þessi próf að vori í 9. bekk í stað hausti í 10. bekk.

Gefur það nemendum, forráðamönnum og kennurum meira svigrúm til þess að nýta sér niðurstöður prófsins til að móta áherslur í námi í 10. bekk en getur líka opnað leiðir inn í framhaldsskóla fyrir þá sem geta og vilja sleppa síðasta ári grunnskólans.

Hafa eitthvað til að stefna að

„Með þessu fáum við betri mynd af stöðu hvers nemanda og þá er hægt að hafa næsta vetur til að vinna með þeim til að bæta þá ákalla og göt sem eru í þekkingunni,“ segir Illugi.  Hann bætir við að með þessu skapist einnig betra tækifæri fyrir nemendur sem skara fram úr til þess að meta hvort þeir séu tilbúnir til að innritast í framhaldsskóla.

„Ef að það er mat nemenda, sem hafa sýnt fram á mjög góðan námsárangur, og foreldra þeirra að þeir séu færir til að fara í framhaldsskóla er komið betra kerfi í kringum það. Þeir þreyta þá þetta próf og ef þeir ná góðum árangri opnast þessi leið. Þá hafa líka þeir nemendur sem vilja fara hraðar eitthvað til að stefna að og ég held að það sé mjög jákvætt.“

Á að koma til móts við þá sem skara fram úr

Illugi segir það ákveðinn hóp sem skarar fram úr í grunnskólunum og að það eigi að koma til móts við þá. „Rétt eins og við komum til móts við þá sem þurfa aðstoð þurfum við líka að hafa kerfi sem styður við þá nemendur sem sýna afbragðsárangur.“

Frá og með næsta hausti verða samræmdu prófin einnig gerð rafræn. Illugi segir löngu kominn tími á það og það gefi tækifæri til þess að þróa prófin betur. Í tilkynningu ráðuneytisins kemur fram að með rafrænum prófum gefst gefst kostur á fjölbreyttari leiðum við að prófa markmið skólastarfs, stytta vinnslutíma miðlægra prófa, bjóða upp á sveigjanleika í fyrirlögn, auðvelda stuðningsúrræði fyrir nemendur með sérþarfir og gefa kost á að laga próffyrirlögn að hæfni nemenda.

Hér að neðan má sjá tilkynningu ráðuneytisins í heild sinni:

Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur, að fenginni tillögu frá Menntamálastofnun, ákveðið að breyta fyrirkomulagi lögbundinna samræmdra könnunarprófa í grunnskólum. Breytingin er tvenns konar.

Í fyrsta lagi hefur verið ákveðið að öll samræmd könnunarpróf verði lögð fyrir með rafrænum hætti frá og með haustinu 2016.

Í öðru lagi hefur verið ákveðið að samræmd könnunarpróf sem undanfarin ár hafa verið haldin að hausti í 10. bekk færist til vors í 9. bekk. Því verður ekkert próf haldið í 10. bekk haustið 2016 en þeir sem verða í 10. bekk á næsta skólaári munu þreyta próf vorið 2017 á sama tíma 9. bekkingar.

Með því að gera prófin rafræn gefst kostur á fjölbreyttari leiðum við að prófa markmið skólastarfs, stytta vinnslutíma miðlægra prófa, bjóða upp á sveigjanleika í fyrirlögn, auðvelda stuðningsúrræði fyrir nemendur með sérþarfir og gefa kost á að laga próffyrirlögn að hæfni nemenda.

Með því að færa 10. bekkjar könnunarprófið í 9. bekk gefst nemendum, forráðamönnum þeirra og kennurum meira svigrúm til þess að nýta sér niðurstöðurnar til að bregðast við og móta áherslur í námi í 10. bekk.

Jafnframt þessum breytingum gerir Menntamálastofnun könnunarprófin hæfnimiðaðri í takt við áherslur í aðalnámskrá grunnskóla frá 2013. Miðað er við að áfram verði tvö könnunarpróf í 4. og 7. bekk, þ.e. í íslensku og stærðfræði. Í 10. bekk verður metin hæfni í íslensku, stærðfræði og ensku.

Menntamálastofnun mun á næstunni kynna betur breytt fyrirkomulag lögbundinna samræmdra könnunarprófa og gefa út dagsetningar á fyrirlögn þeirra á næsta skólaári.

Samkvæmt ákvæðum í almennum hluta aðalnámskrár grunnskóla er foreldrum heimilt að óska eftir því að barn þeirra sé útskrifað úr grunnskóla áður en 10 ára skyldunámi er lokið.  Í aðalnámskránni eru sett viðmið um verklag og forsendur við mat á slíkum óskum.  Með því að færa samræmt könnunarpróf til vorannar í 9. bekk fá foreldrar, nemendur og skólar viðbótarupplýsingar til að meta hvort viðkomandi nemandi búi yfir nægilegri hæfni og geti því innritast í framhaldsskóla.

Frá og með næsta hausti verða samræmd próf rafræn.
Frá og með næsta hausti verða samræmd próf rafræn. Ljósmynd/Eyþór Árnason
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert