Vaxandi snjókoma suðaustanlands

Vetur ræður enn ríkjum hér á landi.
Vetur ræður enn ríkjum hér á landi. mbl.is/RAX

Það er reiknað með vaxandi snjókomu suðaustanlands og víða bleytusnjó sem aftur veldur hálku á vegum. Einkum á þetta við um þjóðveginn frá Vík og austur fyrir Höfn. Austan strekkingur og því nokkuð blint á köflum þegar líður á daginn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Færð og aðstæður

Hálkublettir eru í Þrengslum en Hringvegurinn er auður á Suðurlandi en nokkur hálka er þar á öðrum vegum.

Snjóþekja er á Fróðárheiði annars er hálka á Vesturlandi og Vestfjörðum og sums staðar er snjóþekja og skafrenningur.

Það éljar eða snjóar á Norðurlandi og þar er snjóþekja eða hálka víðast hvar.

Á  Austurlandi er ófært á Fjarðarheiði og á Oddsskarði og beðið með mokstur annars er snjóþekja og hálka á víða á vegum og snjókoma. Þungfært er á Vatnsskarði eystra og Hróarstunguvegi.
 

Með ströndinni Suðaustanlands er hálka.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert