Fleiri klikka á fánanum

David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, ritar nafn sitt í gestabók Alþingis. …
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, ritar nafn sitt í gestabók Alþingis. Einar K. Guðfinnsson, forseti þingsins, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra fylgjast með. Ljósmynd/Breska forsætisráðuneytið

Talsverða athygli vakti, þegar David Cameron forsætisráðherra Bretlands ritaði nafn sitt í gestabók Alþingis í heimsókn sinni til Íslands í október, að breski fáninn sneri öfugt á lítilli fánastöng á borðinu sem ráðherrann notaði til þess að skrá nafn sitt. Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, harmaði mistökin í samtali við mbl.is. Íslendingar vildu að sjálfsögðu sýna fulltrúum erlendra þjóða sem kæmu til landsins fulla virðingu.

Frétt mbl.is: Breski fáninn sneri öfugt

Fleiri eiga það til að klikka á því að flagga breska fánanum með réttum hætti. Þannig birtir breski blaðamaðurinn John Stevens færslu á Twitter-síðu sína í dag af breska fánanum fyrir utan Evrópuþingið í Strasbourg þar sem hann snýr öfugt, en Cameron heimsótti þingið í dag og fundaði með forseta þess og helstu embættismönnum. Miðað við einfalda leit á netinu er um talsvert algeng mistök er að ræða. Ekki síst í Bretlandi sjálfu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert