Vinnustöðvun hjá Rio Tinto Alcan

Ljósmynd/Alcan

Félagsmenn Verkalýðsfélagsins Hlífar hafa samþykkt vinnustöðvun hjá Rio Tinto Alcan á Íslandi. Þá mun ótímabundið útflutningsbann á áli að óbreyttu hefjast í byrjun dags þann 24. febrúar nk.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hlíf. 

Þar segir, að Verkalýðsfélagið Hlíf hafi átt í viðræðum við Samtök atvinnulífsins vegna endurnýjunar á aðalkjarasamningi milli Rio Tinto Alcan/Samtaka atvinnulífsins og Hlífar og annarra hlutaðeigandi verkalýðfélaga. Samningurinn rann út samkvæmt efni sínu þann 31. desember 2014.

Viðræður um framlagðar kröfur reyndust árangurslausar og þann 15. apríl 2015 var deilunni vísað til ríkissáttasemjara. Þann 29. apríl 2015 var lýst yfir árangursleysi viðræðna þrátt fyrir milligöngu ríkissáttasemjara, að því er segir í tilkynningu.

„Samninganefnd verkalýðsfélaganna ákvað þann 9. febrúar 2016 að leita heimildar til undirbúnings og boðunar vinnustöðvunar hjá Rio Tinto Alcan. Í framhaldi af því var tillaga samninganefndar um ótímabundna en takmarkaða vinnustöðvun þeirra félagsmanna Vlf. Hlífar er tilheyra flutningasveit fyrirtækisins og starfa á hafnar og vinnusvæði fyrirtækisins við útskipun á áli. Felur vinnustöðvunin í sér að engu áli verði skipað um borð í skip í Straumsvíkurhöfn, þ.e. ótímabundið útskipunarbann á áli frá byrjun dags (kl. 00:00) 24. febrúar 2016.  Vinnustöðvunin var samþykkt af hlutaðeigandi félagsmönnum Vlf. Hlífar.

Ótímabundið útflutningsbann á áli mun því að óbreyttu hefjast í byrjun dags þann 24. febrúar nk.,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert