Sást þú mann á ferli í Móabarði?

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að karlmanni sem var á ferli í Móabarði í Hafnarfirði sl. mánudagsmorgun, 15. febrúar, um kl. 8 vegna máls sem hún hefur til rannsóknar.

Maðurinn, sem er um 180 sm á hæð og fölleitur, var dökklæddur og með svarta húfu og svarta hanska. Hann er talinn vera á aldrinum 35 – 45 ára.

Þeir sem geta veitt upplýsingar um manninn og ferðir hans eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu á skrifstofutíma í síma 444 1000, en upplýsingum má einnig koma á framfæri á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert