Mikið álag á bráðamóttöku

Mjög brýnt er að fólk leiti ekki á bráðamóttökurnar nema …
Mjög brýnt er að fólk leiti ekki á bráðamóttökurnar nema nauðsyn beri til. Árni Sæberg

Inflúensufaraldurinn er nú óðum að ná flugi. Inflúensutilfellum hefur fjölgað hratt undanfarna tvo sólarhringa og álag á Landspítala orðið mikið vegna þessa, bæði á bráðamóttöku og eins á legudeildunum. Mjög brýnt er að fólk leiti ekki á bráðamóttökunnar nema nauðsyn beri til.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landspítalanum. 

Gerðar hafa verið sérstakar ráðstafanir á Landspítala til að reyna að bregðast við aukinni þörf. Legurými eru af skornum skammti enda nýting legurýma þegar um 100% áður en flensufaraldurinn skall á.

Frétt mbl.is: Heimsæki ekki ættingja og vini

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert