Fólkið í Vík er frá Sri Lanka

Húsið þar sem hjónin frá Sri Lanka búa.
Húsið þar sem hjónin frá Sri Lanka búa. mbl.is/Jónas Erlendsson

Maðurinn sem var handtekinn af lögreglunni á Suðurlandi grunaður um vinnumansal er frá Sri Lanka.

Konurnar tvær sem grunur leikur á um að hann hafi haldið í vinnuþrælkun eru einnig frá Sri Lanka. Þetta staðfesti fyrirtækið Icewear við mbl.is. 

Eiginkona mannsins er sömuleiðis frá Sri Lanka og hefur einnig starfað hjá Icewear. Heimili hjónanna má sjá á meðfylgjandi mynd. Talið er konurnar tvær hafi búið í kjallara hússins. 

Maðurinn var undirvertaki hjá prjónaverksmiðju Icewear í bænum og hefur Víkurprjón rift samningum við verktakafyrirtækið vegna málsins. 

Húsnæði Víkurprjóns og Icewear í Vík í Mýrdal.
Húsnæði Víkurprjóns og Icewear í Vík í Mýrdal. mbl.is/Jónas Erlendsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert