Hélt konunum í vinnuþrælkun

Vík í Mýrdal,
Vík í Mýrdal, mbl.is/Sigurður Bogi

Lögreglan á Suðurlandi handtók í gærdag erlendan karlmann í Vík í Mýrdal vegna gruns um vinnumansal. Fyrir liggur grunur um að maðurinn hafi haldið tveimur konum með erlent ríkisfang í vinnuþrælkun.

Lögreglan á Suðurnesjum, mansalsteymi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, sérsveit ríkislögreglustjóra veittu aðstoð við aðgerðina auk starfsmanna ríkisskattstjóra. Rannsókn er í fullum gangi og á viðkvæmu stigi og lögreglan mun ekki veita frekari upplýsingar að svo stöddu, segir á Facebooksíðu lögreglunnar á Suðurlandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert