Mansalsmál: Gæsluvarðhald í mánuð

Vík í Mýrdal.
Vík í Mýrdal.

Maðurinn sem handtekinn var í gær á Vík í Mýrdal í tengslum við rannsókn á mansalsmáli hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í einn mánuð, eða til 18. mars næstkomandi. Þetta staðfestir Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi í samtali við mbl.is.

Málið er til rannsóknar vegna meintra brota á 227 gr. a. í almennum hegningarlögum, en þau fjalla um brot gegn frjálsræði manna með því að misnota mann kynferðislega eða til nauðungarvinnu.

Oddur segir að maðurinn sé fæddur 1975 og fæddur á Sri Lanka. Hann var handtekinn um hádegisbil í gær eins og komið hefur fram. Segir hann að lögreglan muni ekki tjá sig frekar um málið að svo stöddu, enda séu mál sem þessi viðkvæm.

 [227. gr. a. [Hverjum þeim sem gerist sekur um eftirtalda verknaði, einn eða fleiri, í þeim tilgangi að misnota mann kynferðislega eða til nauðungarvinnu eða til að nema á brott líffæri hans skal refsa fyrir mansal með allt að [12 ára fangelsi]:1) 
   1. Að útvega, flytja, afhenda, hýsa eða taka við einstaklingi og við það er beitt eða hefur verið beitt ólögmætri nauðung skv. 225. gr., eða frelsissviptingu [skv. 1. mgr. 226. gr.],1) eða hótun skv. 233. gr., eða ólögmætum blekkingum með því að vekja, styrkja eða hagnýta sér villu viðkomandi um aðstæður eða með því að hagnýta sér bága stöðu viðkomandi.
   2. Að útvega, flytja, afhenda, hýsa eða taka við einstaklingi yngri en 18 ára.
   3. Að láta af hendi greiðslu eða annan ávinning til að afla samþykkis til misnotkunarinnar hjá manni sem ræður gerðum annars manns.
 Sömu refsingu skal sá sæta sem tekur við greiðslu eða öðrum ávinningi skv. 3. tölul. 1. mgr.
 Beinist brot skv. 1. mgr. gegn barni skal taka það til greina til þyngingar refsingunni.
 Sömu refsingu skal hver sá sæta sem gerist sekur um eftirtalda verknaði, einn eða fleiri, í því skyni að greiða fyrir mansali: 
   1. Að falsa ferða- eða persónuskilríki.
   2. Að annast milligöngu um slík skilríki eða útvega þau.
   3. Að halda eftir, fjarlægja, skemma eða eyðileggja ferða- eða persónuskilríki annars einstaklings.]2)]3)

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert