Umferðardeild lögreglunnar stöðvaði bifreið eftir hraðamælingu við Miklubraut um hálf tíu leytið í gærkvöldi. Ökuhraði bifreiðarinnar mældist 160 km/klst þar sem hámarkshraði er 80 km/klst. Ökumaðurinn var kærður og sviptur ökuréttindum til bráðabirgða, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.
Skömmu fyrir eitt í nótt var síðan bifreið stöðvuð í Norðlingaholti en ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis.