Sex milljarða samningur

Teikning af fyrirhugaðri kísilmálmverksmiðju Thorsil.
Teikning af fyrirhugaðri kísilmálmverksmiðju Thorsil.

Thorsil ehf. hefur að undangengnu alþjóðlegu útboði samþykkt tilboð norska fyrirtækisins Vatvedt AS í tvo ofna og annan búnað í fyrirhugað kísilver félagsins í Helguvík.

Hvor ofn notar um 40 MW af raforku á klukkustund og er árleg framleiðslugeta þeirra samtals um 54.000 tonn af kísilmálmi, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgublaðinu í dag.

Fyrirvari er um endanlega fjármögnun, en lánsloforð liggur fyrir frá norskum lánveitendum í tengslum við samninginn. Verðmæti samningsins er um 6 milljarðar íslenskra króna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert