Vélarvana skip suður af Grindavík

Björgunarskipið Oddur V. Gíslason á siglingu. Úr safni.
Björgunarskipið Oddur V. Gíslason á siglingu. Úr safni. mynd/Slysavarnafélagið Landsbjörg

Björgunarskipið Oddur V. Gíslason er nú að búa sig til farar til að sækja vélarvana línubát sem staddur er um 30 sjómílur suður af Grindavík. Veður er gott og ekki er talin vera hætta á ferðum fyrir skipverja.

Búist er við að það taki björgunarskipið um tvær klukkustundir að sigla á staðinn og fjórar klukkustundir að draga vélarvana skipið til hafnar, að því er segir í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert