Fordæmir verkfallsbrot yfirmanna

Álverið í Straumsvík.
Álverið í Straumsvík.

AFL Starfsgreinafélag  fordæmir verkfallsbrot yfirmanna ISAL í Straumsvík sem gengu í morgun í störf hafnarverkamanna í löglega boðuðu verkfalli þeirra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Setur samningaviðræður í uppnám

Þar bendir AFL  á að nú standi yfir allsherjaratkvæðagreiðsla um sátt á vinnumarkaði til næstu tveggja ára og framkoma yfirmanna ISAL í yfirstandandi kjaradeilu setji samningaviðræður um framtíðarskipan vinnumarkaðar í uppnám. AFL skorar á stjórn Samtaka Atvinnulífsins að fordæma framkomu ISAL og yfirmanna fyrirtækisins.

„Framtíðarsátt á vinnumarkaði getur ekki orðið þeim hætti að verkalýðsfélög skuldbinda félagsmenn sína með kjarasamningum á meðan aðildarfyrirtæki Samtaka atvinnulífsins taka sér sjálfdæmi um það hvort þau virði þá samninga,“ segir í tilkynningunni.

„Til háborinnar skammar“

„Kjaradeilan er orðin langvinn og því þarf ekki að undra þótt gripið sé til aðgerða til að þrýsta á um kjarabætur. Framkoma  Rio Tinto og forsvarsmanna þess í samningaviðræðum við stéttarfélögin er fyrirtækinu til háborinnar skammar og steininn tekur úr við aðgerðum þess í morgun. Við getum ekki unað því að alþjóðleg stórfyrirtæki hámarki hagnað sinn á kostnað íslensks launafólks þvert á kjarasamninga. Útvistun verkefna er eitt helsta verkfæri stórfyrirtækja til félagslegra undirboða og gegn því þarf að berjast af fullri hörku.“

„AFL Starfsgreinafélag lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu starfsmanna í Straumsvík og rétti þeirra fyrir því að gerðir við þá kjarasamningar eins og íslensk lög gera ráð fyrir.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert