Ræddu aðkomu bandaríska hersins á Íslandi

Frá fundinum í dag.
Frá fundinum í dag. Af Facebooksíðu Utanríkisráðuneytisins

Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, átti í dag fund með Jim Townsend, aðstoðarvarnamálaráðherra Bandaríkjanna, og Benjamin Ziff, aðstoðarutanríkisráðherra, um samstarf þjóðanna á sviði öryggis- og varnarmála. Fundurinn er hluti af reglubundnu samráði landanna um öryggis- og varnarmál með þátttöku fulltrúa úr forsætisráðuneyti og innanríkisráðuneyti, auk utanríkisráðuneytis. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. 

Á fundinum var fjallað um breytt öryggisumhverfi í Evrópu og í Miðausturlöndum og hvaða áhrif það hefur á Evrópu, t.d. með auknum straumi flóttamanna. Aukin hætta á hermdar- og hryðjuverkum var rædd. Þá var fjallað um vaxandi hernaðarumsvif Rússa á Norður-Atlantshafi og viðbrögðum Atlantshafsbandalagsins til að styrkja eigin varnir. 

Einnig var rætt um aðkomu bandaríska hersins á Íslandi að loftrýmisgæslu, kafbátaleit og þátttöku í æfingum, sem er hluti af vörnum landsins og sameiginlegum vörnum Atlantshafsbandalagsins, sem byggir á aðild okkar að bandalaginu og varnarsamningnum við Bandaríkin frá 1951. Engar viðræður hafa farið fram um fasta viðveru bandaríska hersins á Íslandi og engar óskir lagðar fram þar að lútandi. 

Að loknum fundi utanríkisráðherra áttu embættismenn beggja landa ítarlegan samráðsfund um samstarf á sviði öryggis- og varnarmála og voru, auk ofangreindra mála, einnig til umræðu löggæslumál og netvarnir, og gerð var grein fyrir tillögu til þingsályktunar um þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland, sem nú er til umfjöllunar á Alþingi.

Af Facebook síðu Utanríkisráðuneytisins
Af Facebooksíðu Utanríkisráðuneytisins
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert