Samþykktur með 91% greiddra atkvæða

Skrifað undir kjarasamning ASÍ og SA.
Skrifað undir kjarasamning ASÍ og SA. mbl.is/Árni Sæberg

Sameiginlegri allsherjaratkvæðagreiðslu félagsmanna aðildarsamtaka ASÍ um kjarasamning milli aðildarsamtaka ASÍ og SA frá 21. janúar 2016 lauk kl. 12 á hádegi í dag.

Já sögðu 9.274 eða 91,28%. Nei sögðu 832 eða 7,81%. Auðu skiluðu 97 eða 0,91%. Kjarasamningurinn var því samþykktur.

Á kjörskrá voru 75.635. atkvæði greiddu 10.653 eða 14,08%.

Uppfært 14:04

Í fyrstu var talað um að Salek-samkomulagði hefði verið samþykkt, en það reyndist á misskilningi byggt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert