Alvarlegt slys í Gufunesi

Alvarlegt slys varð í húsi við gömlu Áburðarverksmiðjuna í Gufunesi nú fyrir skömmu. Lögregla og slökkvilið er á vettvangi.

Einn slasaðist var fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann.

Um vinnuslys var að ræða og telur lögregla að fiskikör hafi fallið á manninn. Lögregla er á vettvangi og rannsakar málið. 

Ekki fást nánari upplýsingar um málið að svo stöddu. 

Fréttin verður uppfærð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert