Grunaður um árás í Hafnarfirði

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Ungur maður var handtekinn á heimili í Hafnarfirði rétt fyrir klukkan einn í nótt grunaður um líkamsárás. Maðurinn var í annarlegu ástandi og var vistaður i fangageymslu vegna rannsóknar málsins. 

Tveir menn handteknir í gærkvöldi grunaðir um fjársvik í verslun í Kópavogi. Mennirnir voru vistaðir í fangageymslu vegna rannsóknar málsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert