Getspakir Grindvíkingar

AFP

Hópur frá Grindavík var með alla leikina rétta í enska getraunaseðlinum í dag og var hópurinn sá eini á Íslandi sem náðu 13 réttum. Alls fá þeir rúmlega 440 þúsund krónur í sinn hlut fyrir 13 rétta að þessu sinni.

Er þetta í þriðja sinn á þessu ári sem hópur frá Grindavík fær 13 rétta í Getraunum, að því er segir í tilkynningu frá Íslenskum getraunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert