Féll af svölum og fótbrotnaði

mbl.is/Hjörtur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að lögreglumenn sem sinna Hafnarfirði og Garðabæ hafi fengið tilkynningu á sjötta tímanum í morgun um öskrandi karlmann fyrir utan fjölbýlishús.

Maðurinn, sem var ölvaður, hafði fallið um þrjá metra niður af svölum er hann var að reyna að komast inn til sín.

Lögreglan segir að maðurinn hafi líklega fótbrotnað og var hann fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert