Ferðamennirnir alvarlega slasaðir

Landspítalinn í Fossvogi.
Landspítalinn í Fossvogi. mbl.is/Ómar

Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti fyrir skömmu hjá Landspítalanum með erlendu ferðamennina sem veltu bíl sínum nálægt Stykkishólmi í dag. Þeir eru alvarlega slasaðir. 

Slysið varð upp úr klukkan 15.

Í fréttatilkynningu frá Landhelgisgæslunni kemur fram að klukkan 15:26 hafi borist beiðni um aðstoð þyrlu vegna slyssins sem var á Stykkishólmsvegi austan við Álftafjörð. Þá þegar var áhöfnin á TF-LIF kölluð út og var þyrlan komin í loftið skömmu síðar. Þar segir að greiðlega hafi gengið að fljúga á slysstað og koma hinum slösuðu um borð í þyrluna. Voru þrír fluttir með þyrlunni á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi og lenti þyrlan þar skömmu fyrir hálfsex í kvöld.

Frétt mbl.is: Erlendir ferðamenn veltu bíl sínum

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert